MISMUNANDI ÁKLÆÐATEGUNDIR

Að velja áklæði er mikilvægur hluti af því að útfæra Furninova sófa sem endurspeglar þinn persónulega stíl. Rétt áklæði hefur ekki aðeins áhrif á útlit sófans heldur einnig á áferð, upplifun og karakter hans. Með fjölbreyttu úrvali efna, lita og áferða gefur Furninova þér frelsi til að finna þá samsetningu sem hentar þér og þínu heimili best.

Fjölbreytt úrval getur þó gert valið krefjandi. Þess vegna kynnum við hér helstu gerðir áklæða sem finna má í vörulínu Furninova og útskýrum eiginleika þeirra. Mörg áklæðanna eru unnin úr blöndu mismunandi efna, þar sem kostir hvers efnis eru nýttir til að ná fram réttu jafnvægi milli útlits, áferðar, endingar og þæginda.

Hjá Furninova er hvert áklæði vandlega valið og prófað með það að markmiði að standast þær ströngu kröfur sem við gerum til gæða og endingar. Við fylgjum REACH-reglugerðinni, sem setur strangar kröfur um notkun efna og takmarkar skaðleg efni í framleiðslu.

Þannig er val á áklæði hjá Furninova meira en spurning um lit og útlit. Það er hluti af heildarhönnun húsgagnsins – þar sem vandað efnisval, góð hönnun og persónulegur stíll fara saman.

Áklæðategundir
Áklæðategundir
Áklæðategundir
Áklæðategundir
Áklæðategundir

AKRÝL

Akrýl er gervefni sem heldur lit sínum einstaklega vel, jafnvel þegar efnið verður fyrir mikilli birtu. Efnið hefur miðlungs slitþol og hentar því vel í ýmsar gerðir húsgagnaáklæða.

Akrýl getur haft tilhneigingu til að hnökra og sú tilhneiging getur aukist þegar trefjunum er blandað saman við önnur efni. Hnökrun er eðlilegur eiginleiki ákveðinna áklæða og þarf ekki að hafa áhrif á endingu þeirra.

BÓMULL

Bómull er náttúruleg plöntuefni sem einkennist af góðu slitþoli og endingu. Þessir eiginleikar gera bómull að góðum kosti í húsgagnaáklæði, bæði eitt og sér og í blöndu með öðrum efnum.

Bómull þolir almennt vel þvott og hita, en getur haft tilhneigingu til að krumpast og hlaupa. Mikilvægt er því að fylgja ávallt umhirðuleiðbeiningum viðkomandi áklæðis til að varðveita útlit þess og eiginleika sem best.

ULL

Ull er náttúrulegt og einstaklega hentugt efni í húsgagnaáklæði. Ullin er slitsterk, hrindir vel frá sér óhreinindum og hefur náttúrulegan teygjanleika sem hjálpar áklæðinu að halda lögun sinni og dregur úr krumpum.

Nýtt ullaráklæði getur hnökrað lítillega á yfirborðinu til að byrja með. Það er eðlilegur eiginleiki ullar og segir ekkert til um gæði eða endingu áklæðisins.

VISCOSE & POLYPROPYLENE

Viskós er mjúkt efni sem er ekki eins slitsterk og mörg önnur efni. Í húsgagnaáklæðum er hún því gjarnan notuð með sterkari trefjum. Viskós getur gefið áklæðinu fallegan gljáa, mýkt og fágaða áferð og er því oft notuð til að skapa ákveðið yfirbragð og yfirborðsáferð.

Polypropylene er gerviefni sem einkennist af miklu slitþoli og góðri lit- og ljóslitheldni. Efnið er jafnframt auðvelt í umhirðu og hentar því vel þar sem lögð er áhersla á bæði endingu og þægilega daglega notkun.

POLYESTER & NYLON

Polyester og nælon eru sterk gervitefni sem henta sérstaklega vel í húsgögn sem þurfa að þola mikla daglega notkun. Efnin hafa gott slitþol, halda lit sínum vel og eru almennt auðveld í þrifum og umhirðu.

Sum áklæði, sérstaklega flauelskennd efni, geta virst skipta um lit eða blæ eftir því úr hvaða átt birtan fellur á þau. Þetta er náttúrulegur eiginleiki áferðarinnar en ekki galli. Þvert á móti gefur þessi breytileiki áklæðinu aukna dýpt og lifandi yfirbragð sem getur orðið hluti af karakter húsgagnsins.